Tuesday, April 16, 2013

Gott kombó !





Poppkex með kotasælu og gúrku er svaka gott kombó ! Ég segi það og skrifa … 




Það er eitthvað við þetta … saltbragðið af poppkexinu þeysist saman við hinn ómótstæðilega keim kotasælunnar og vatnskenndi gúrkusafinn situr svo punktin yfir i-ið! 


Monday, April 15, 2013

Kaldur sólardagur ...




Í dag var svo gott veður .. sól og sumar.  Ég eyddi þó mestmegni dagsins inni að gæla við lærdómsbækurnar. En maður verður víst að bíta í það súra epli þangað til prófin eru afstaðin.  Ég brá mér þó aðeins af bæ (skóla) og setti upp sólgleraugun sem ég er svo ánægð með …. ég syrgi þó enn þau gömlu, en það fór nú aldeilis illa fyrir þeim þegar undirrituð hlammaði sér í bílsætið einn daginn án þess að líta undir sig.  

gallajakkinn var dregin fram í dag … er samt komin aftur inní skáp núna, var kannski ekki alveg svona hlýtt

Svona eru kaffiboðin hjá ömmu ALLA sunnudaga, hún leggur mikið uppúr því að ég borði nú vel og mikið… ekkert megrunartal á hennar heimili.

Og jújú sólgleraugun á sínum stað … keypti þessar elskur í VILA á rétt rúmar 3000 krónur


-gm