Eins og auðsjéð er heiti ég Gréta María og er Dagbjartsdóttir. Ég kem frá Reyðarfirði en bý nú í Reykjavík og stunda nám í ferðamála - og viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Ég er þaulreyndur bloggari en lagði skóna á hilluna fyrir nokkrum árum. Ég ákvað þó að byrja aftur í ár með nýju sniði. Hingað inn munu vangaveltur og hugrenningar mínar rata sem og alskyns vitleysa sem tengist mér ekki á nokkurn hátt. Vona að þið njótið !