Friday, May 31, 2013

Dauð úr öllum æðum ... ?


Blogglega séð Já … líkamlega séð Nei … blóðið rennur enn. 

Tók mér bloggpásu í prófatíðinni sem ílengdist svo , þar til núna!  Nú eru blessuð prófin búin, einkunnir komnar í hús og stressið horfið á braut, eða svona… næstum.  Nú er hins vegar komin tími til að taka upp pennann aftur og hripa niður nokkur orð hér inná.

Þessa stundina bíð ég eftir því að geta skottast útá flugvöll og fljúga þaðan austur á land.  Eina heimsókn mín austur þetta sumarið svo það er eins gott að helgin standist undir væntingum.  Trúi nú ekki öðru … elsku vinkonur mínar eru heldur hressar og halda yfirleitt uppi stuði. 


Ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni en ætla að reyna að henda inn bloggi hér um helgina J


Niðurpökkuninn gekk vel … pakkinn er handa Krissu systur minni en hún á afmæli 5. Júní ! … sýni ykkur innihaldið síðar.

 Klæðnaður dagsins … þæginlegur og töff thíhí …



Þangað til næst :) .. vonandi haldið þið áfram að fylgjast með mér þó svo að ég hafi tekið mér pásu !