Thursday, February 28, 2013

Kimono draumur ....


Sá svo fallegan jakka með Kimono-ívafi í Zöru.  Hann er svo sumarlegur og töff …. Hann kostar í Zöru 9.995 kr.  Er það bara ég eða er Zara farin að færa sig dáldið uppá skaftið með verðin?  Í minningunni var fatnaðurinn í ódýrari kantinum þar.  



Það er þessi sem mig dreymir um ....

Annars eru hér fleiri fallegir úr Zöru :

Þessi kostar 16.995 !  Skil nú ekki alveg þá staðreynd… 


Þessi er á 8.995 kr … það telst nú frekar eðlilegt í dag myndi ég segja


Þessi er svo á 13.995 kjéll


Ætli maður verði ekki bara að láta sig dreyma eins og er :)  






Friday, February 22, 2013

Föstudagsdetail ...


Klæddi mig aðeins upp í tilefni föstudagsins og eftir að hafa verið að lúðast í allan dag í kósýfötunum að hripa niður hálfgerða ritgerð.  


Rauð blúnda og gyllt fjaðrahálsmen, sem og gamla góða Topshop veskið mitt... sakna þeirra tíma að ég gat verslað í Topshop, nú þori ég ekki þangað inn fyrir mitt litla líf.


Gleðilegan Föstudag :)