Þá er dagurinn sem við öll elskum
gengin í garð… Mánudagur jibbí jeyj ! Morguninn byrjaði á lærdómi, en ég er að
fara í eitt stykki lokapróf á morgun… það er dáldið erfitt að koma sér í
prófagírinn svona á miðri önn verð ég að segja, það vantar alla súra
prófastemmingu.
Annars er fyrirlestrahlé hjá mér í
skólanum þessa vikuna svo maður hefur ágætis tækifæri til þess að spíta aðeins
í lófanna hvað varðar verkefnavinnu. Það
verður ekkert nema fjör.
Tebolli
í morgunsárið
No comments:
Post a Comment