Blogglega séð Já … líkamlega séð Nei
… blóðið rennur enn.
Tók mér bloggpásu í prófatíðinni sem
ílengdist svo , þar til núna! Nú eru blessuð
prófin búin, einkunnir komnar í hús og stressið horfið á braut, eða svona…
næstum. Nú er hins vegar komin tími til
að taka upp pennann aftur og hripa niður nokkur orð hér inná.
Þessa stundina bíð ég eftir því að
geta skottast útá flugvöll og fljúga þaðan austur á land. Eina heimsókn mín austur þetta sumarið svo
það er eins gott að helgin standist undir væntingum. Trúi nú ekki öðru … elsku vinkonur mínar eru
heldur hressar og halda yfirleitt uppi stuði.
Ætla ekki að hafa þetta lengra að
sinni en ætla að reyna að henda inn bloggi hér um helgina J
Niðurpökkuninn
gekk vel … pakkinn er handa Krissu systur minni en hún á afmæli 5. Júní ! …
sýni ykkur innihaldið síðar.
Klæðnaður dagsins … þæginlegur og töff thíhí …
Þangað til næst :) .. vonandi haldið þið áfram að fylgjast með mér þó svo að ég hafi tekið mér pásu !
No comments:
Post a Comment