Monday, July 15, 2013

Tax Free helgi - þjófstart á fríhöfnina.




Ég fer undantekningarlaust í Hagkaup þegar þeir auglýsa Tax Free á snyrtivörum , enda nógu dýr andskoti fyrir.  Ég er þó ekki mikil förðunaráhugakona, ég kaupi nú bara yfirleitt það ódýrasta og klíni því í andlitið á mér.  En um helgina var Tax Free helgi og er út daginn í dag, ég keypti nokkrar nauðsynjar í gær.


  

1.Rocket Volume maskari frá Maybelline. Keypti mér þessa tegund á seinustu Tax Free helgi og tók ástfóstri við henni … nýji uppáhalds maskarinn minn

2.Kanebo Bronze gelið.  Er búin að nota þetta gel lengi vel og var farið að vanta nýtt.  Þetta er ekki ódýrasta varan á markaðnum en hún er afar endingargóð.

3.Christina Aguilera.  Örugglega sú stjarna sem best hefur tekist til með ilm.  En ég hef notað þetta ilmvant í mörg ár en alltaf keypt það í fríhöfninni og ætlaði það líka í þetta skiptið, nema hvað áður en ég vissi af var Daði rokinn af stað að kaupa það handa mér, þessi elska.

4.Einn sumarlegur varalitur frá Maybelline, Mango Diamonds heitir þessi.

5.Augnskuggapalletta frá Maybelline.  Ég er nú ekki mikil augnskuggamanneskja, nota þá sjáldan og á fáa.  Ég ákvað þó að grípa eina pallettu með bara svona því hún var á tilboði.

6.Eitt stykki naglalakk þvældist með í körfuna, en maður á nú aldrei nóg af þeim.

-gm




No comments:

Post a Comment