Ég bætti aðeins í Instagramvegginn
minn um daginn … mér finnst hann gefa íbúðinni og lífinu lit!
Ég bý á stúdentagörðunum og má því
ekki negla í veggina, get hins vegar látið myndir hanga í einhverjum snærum og
girnum neðan úr lista , en ég bara nenni ekki svoleiðis veseni. Ég lét þess vegna bara framkalla slatta af
myndum og hengdi þær upp með kennaratyggjói , gerist ekki einfaldara. Ég tel það nú líka mikilvægt fyrir nútímafólk
að framkalla myndir , þó þær fari kannski ekki allar uppá vegg en bara til þess
að skella í almbúm… maður veit aldrei hvenær talvan eða harði diskurinn ákveður
að klikka. Markmiðið mitt er allavena að
láta framkalla reglulega… það verður líka svo gaman í ellinni.
Endalaust
hægt að bæta við … verð komin með
veggfóður úr þessu áður en ég veit af
gm
No comments:
Post a Comment