Monday, March 4, 2013

Fashionology




Fashionology er hollensk skartgripalína , hönnuð að hinni 27 ára gömlu Rachel Duister. 

Ég eignaðist tvö armbönd úr línunni fyrir c.a einu og hálfu ári síðan og hef notað þau nánast uppá hvern einasta dag… svo var ég svo heppin að fá hálsmen frá Fashionology í jólagjöf og sama sagan er með það …. ég nota það óspart.  Skartið fæst hér á landi í GK Reykjavík en annars fæst það hér.

Mér finnst bókstaflega ALLT fallegt frá þeim ! Hlakka til þegar ég eignast fleiri gripi í safnið, sem verður vonandi einhvertíman J

Þetta eru armböndin mín… nota krossana mjög mikið.




Ég fékk hálsmen eins og þetta í jólagjöf




Svo margt fallegt !





- Þangað til næst -




Skrítið?



Er ég sú eina sem finnst skrítið að þessi toppur kosti 6.990 kr? … 6.990 kr fyrir loft?

Fæst hér , ásamt mörgu fallegu. 



-

Friday, March 1, 2013

Föstudagur once again


Gleðilegan föstudag kæra fólk … Vinnuhelgin mín byrjaði í gær og heldur ótrauð áfram fram á sunnudag :) Ætla nú samt að reyna að henda einhverju hér inn á milli stríða.