Friday, February 22, 2013
Thursday, February 21, 2013
Helgin nálgast ...
Heil & Sæl kæru lesendur :)
Nú er ég glaðvöknuð á leið minni í
skólann , ég skal rumpa þessu verkefni af í dag ! Nenni varla að fara læra
mikið um helgina… þetta er fyrsta fríhelgin mín í 3. Vikur. Gleðin verður við völd, enda góð vinkona frá
Reyðarfirði að leggja leiðir sínar til borgarinnar sem og að önnur góð vinkona
efnir til gleðskaps vegna útskriftar sinnar… þetta verður ekkert nema stuð… jíhaa.
En annars er það alltaf þessi hugsun,
þegar eitthvað er að ske um helgar, :í hverju á ég að vera? Veit ekki með aðra
en ég er allavena alltaf byrjuð að pæla í þessu á mánudegi fyrir viðburð næstu
helgar. Það væri svo frábært ef maður
synti í peningum eða einhver tískurisi væri að sponsóra mann og maður gæti þá
fengið nýja flík fyrir hvern viðburð. En
það er víst ekki svo gott, ekki enþá a.mk.
En allavena , svo kemur að ákvörðunninni miklu og ég máta yfir 30 flíkur
og allt er ómögulegt… svo enda ég á því að fara í einhverju venjulegu
uppáhaldi, eða flíkinni sem ég mátaði fyrst.
Ekkert nema vítahringur.
En maður verður víst að bíta í það
súra epli og fara í gömlum “lörfum”. Reyndar
bý ég svo vel við að eiga inneignarnótu í Suzie Q. Gæti nú hugsanlega fundið eitthvað sniðugt
þar, en málið er bara það að maður finnur ekki neitt geggjað þegar maður á efni
á því, en kannski ég láti á það reyna.
Þetta
er brot af því sem finna má í Suzie Q .. finnst skyrtan neðst í vinstra horninu
svo lúmskt töff ! Myndirnar eru héðan
…
Svo ein gömul “lörf” sem ég klæðist í dag, gömul Topshop skyrta, hef ákveðið að
gefa henni líf á ný …
Þangað til næst :)
Wednesday, February 20, 2013
Mið .. Vika !
Vúpsí dúpsí … ekkert blogg í gær
sökum “bissí” dags. Fór í eitt próf og
jah veit nú ekki hvernig það fór… það kemur í ljós. Einnig var fyrsti Sviðsráðsfundur Verk –og náttúruvísindasviðs haldin, og var ég kosin ritari hópsins , svo nú skal sko
ritað ! En framundan er mikil og skemmtilega vinna með þessu frábæra fólki sem
situr með mér í ráðinu :)
Við hjónaleysin gerðum okkur svo
lítið fyrir og elduðum í gær, það eru stórfréttir, gerist mjög sjaldan. Reyndar vildi hann nú fyrst panta Dómínós
pítsu en ég þvertók fyrir það, enda í stórátaki… jah allavena þangað til um
helgina. En enduðum á að elda þennan
kjúklingarétt. Virkileg god !!
Er núna að reyna að koma mér uppí
skóla eftir átök í Baðhúsinu með þessa í eyrunum !
Er ekki alltaf skemmtilegra að láta myndir fylgja? Mér finnst það a.m.k
Er ekki alltaf skemmtilegra að láta myndir fylgja? Mér finnst það a.m.k
….
Þó það séu lélegar speglamyndir ! .. En allavena klæddist rauða vestinu mínu í
gær sem ég fékk í Spútnik fyrir löngu síðan… nú er mottóið að NOTA fötin sín..
á það alltof mikið til að kaupa mér föt og nota þau síðan ekki.
Rómó á Eggjó
MorgunBooztin… elska þetta glas, fæst
á slikk í Krónunni
Þangað til næst :)
Subscribe to:
Posts (Atom)
