Saturday, June 8, 2013

Múmíndraumur ...



Gaf fröken systur minni svona sætan Múmínbolla í afmælisgjöf … rándýrt helvíti , en samt svo sætt !




 Þegar við systur vorum litlar áttum við bláa Múmínhúsið og alla múmínkallana og alskyns múmíndót… einnig áttum við Múmínskútu! Við góðhjörtuðu systurnar gáfum svo flóttakrökkum frá Kósavó allt múmíndótið, þau stoppuðu nú stutt þarna á Reyðarfirði .. og það sem mig langar að vita hvað varð um múmíið .. dauðsé eftir því ! (vona náttúrurlega samt að Kósavóbörnin hafi notið vel af )


 SKÁL !


Ætla að arka til vinnu , þangað til næst :) 

Thursday, June 6, 2013

Sumarleg kaup ...



Ég fjárfesti um daginn í þessum fínu og sumarlegu símahulstrum … leyfði mér nú bara þrjú en hefðu getað orðið fleiri og var valið erfitt ! Það besta við þessi kaup er að þau kostuðu hvort um sig 1190 kr , sem er jú gjöf en ekki gjald.  Ég er allavena þrusuánægð með þau. 


Ég fékk þau í Shop Couture og þau fást á Iphone 4, 4s og 5 .. mér sýndist þær líka vera með á Samsung símana.


-gm

Wednesday, June 5, 2013

Austfjarðasæla ...

Góða kvöldið kæru lesendur.

Nú er undirrituð mætt aftur til höfuðborgarinnar eftir helgarsælu fyrir austan .. jah ég hefði nú betur sleppt því að mæta aftur hingað í borgina og verið eftir í hitabylgjunni þarna austan fyrir, í stað þess að fjúka um borgina með tilheyrandi rigningu. 

Annars var helgin æðisleg og svo gott að hitta múttu sem og vinkvennsurnar.  Skellti mér á sjómannadagsball á Eskifirði, útskriftarpartý og afmælispartý.  Systir mín hún Kristveig var að halda afmælispartýið en hún á afmæli í dag kéllingin … óska henni til lukku með það !


Læt nokkrar myndir fylgja :




Við mæðgur prufuðum nýja veitingastaðinn SALT á Egs og létum vel af !


Gerður fer yfir ferðaplan Interrail-ferðarinnar okkar í ágúst … meira um það síðar !


Þessi útskriftargjöf er sko ekki af verri endanum

Við Krissa vorum duglegar að hita upp fyrir Helga Bjöss og félaga… Ps: fjárfesti í þessum disk aðeins 9 ára gömul , sem útskýrir límmiðana.

Hjördís og Íris voru manna hressastar í útskriftarpartý

Ég og Maren Tinna vinkona mín <3