Monday, March 11, 2013

Helgin að baki


Jæja þá er þessari óhollustu helgi lokið og komin mánudagur eina ferðina enn.  Ég skemmti mér konunglega á árshátíð á föstudaginn, vann meira segja vinning og allt.  Það er ekki frásögufærandi nema hvað að þegar ég vaknaði daginn eftir og ætlaði að reyna að koma upp orði mundi ég eftir því að ég hafði glatað röddinni minn þarna um kvöldið, en hún er þó sem betur fer öll að koma til í dag.  En það er erfitt fyrir svona málglaða manneskju eins og mig að missa hljóðfærið sitt. 

Annars ætlaði ég bara að láta nokkrar myndir fylgja … ég var nú reynda enþá svekktari yfir því daginn eftir hversu fáar myndir ég hafði tekið ! Ég var uppteknari við að dansa við nostalgíulög á dansgólfinu en að taka myndir.   


Þetta kom allt að góðum notum … jah nema ég veit ekki alveg hvað varð um smokkana þó ...

Svona var maður fínn

Herbergisfélagarnir tilbúnir í slaginn

Deildi borði með svona fínu fólki… þar á meðal Herra Ferðamálafræði !!


Ó svo var þetta það besta við ferðina ! Fékk mér svona á heimleiðinni eftir margra ára fjarveru … þetta var bezt


-- 


 




Friday, March 8, 2013

Árshátíðarkaup


Á eftir liggur leið mín til Hveragerðis þar sem ég fer á árshátíð nemendafélagsins.  Það verður eflaust mikið stuð og stemmerí á Hótel Örk í kvöld.  Veskið leyfði mér ekki að splæsa í nýjan kjól fyrir árshátíðina svo það verður einhver gamall og góður sem fær heiðurinn.  Vinkona mín var svo góð að lána mér tvo…. en núna korter í árshátíð hef ég þó ekki enþá tekið lokaákvörðun.

Maður verður nú samt að leyfa sér aðeins… svo leið mín lá í kringluna áðan þar sem ég keypti tvennt: Hálsmen við kjólinn (hver sem hann verður) og að sjálfsögðu smá öl. 

Hálsmenið keypti ég í Topshop … held að það eigi eftir að verða mikið notað!



 Árshátíð… jibbí jei