Friday, March 8, 2013

Árshátíðarkaup


Á eftir liggur leið mín til Hveragerðis þar sem ég fer á árshátíð nemendafélagsins.  Það verður eflaust mikið stuð og stemmerí á Hótel Örk í kvöld.  Veskið leyfði mér ekki að splæsa í nýjan kjól fyrir árshátíðina svo það verður einhver gamall og góður sem fær heiðurinn.  Vinkona mín var svo góð að lána mér tvo…. en núna korter í árshátíð hef ég þó ekki enþá tekið lokaákvörðun.

Maður verður nú samt að leyfa sér aðeins… svo leið mín lá í kringluna áðan þar sem ég keypti tvennt: Hálsmen við kjólinn (hver sem hann verður) og að sjálfsögðu smá öl. 

Hálsmenið keypti ég í Topshop … held að það eigi eftir að verða mikið notað!



 Árshátíð… jibbí jei





No comments:

Post a Comment