Friday, March 22, 2013

Bleikur boozt og bústaður !


Góðan og blessaðan daginn :) það er ekki hægt annað en að vera í góðu skapi í dag , enda föstudagur … og ekki skemmir góða vorveðrið fyrir.
 
Er búin að hlakka til þessa föstudags í margar vikur, en seinna í dag liggur leið mín ÚR borginni.  Við hjúin ætlum að fara í bústað og vera yfir helgina.  Það er alveg bráðnauðsynleg fyrir svona smábæjar stelpu eins og sjálfan mig að komast aðeins úr borginni og öllu hennar amstri.  Lærdómsbækurnar fá líka að koma með , enda bíður mín eitt lokapróf í næstu viku , sem og tvær ritgerðar bíða þess að vera skrifaðar.  Ætla nú samt líka að taka með mér hvítvínstár … jah og smá bjórskvettu.....Æj okei... tvo kassa af bjór og hvítvínsflösku. 

Byrjaði daginn á Bleiku morgunBoozti … þá getur dagurinn bara ekki klikkað

Svona er veðrið búið að vera gott í götunni minni undanfarna daga :)


Gleðilegan föstudag… gangið hægt um gleðinnar dyr ! 





  


No comments:

Post a Comment