Tuesday, March 12, 2013

Self Control !






Nei nú gengur þetta ekki lengur … ég ætla að rifja upp kynninn við gamlan vin minn Self Control.  Marsmánuður er án efa leiðinlegasti og erfiðasti mánuðurinn í skólanum, endalaus stór verkefni sem öllum á að skila á svipuðum tíma… og svo jú tekur kannski ekkert mikið skemmtilegra við þar á eftir , sjálf prófin. 

Núna á ég tildæmis að vera að vinna í smá ritgerð, en maður villist af og til útaf sporinu …þá hvert? Jú á Facebook ! … eða þá aðrar heimasíður sem tengjast náminu ekki neitt …. Lausnin við þessu er Self Control. 

Self Control virkar þannig að þú býrð þér til “Black List” eða Svartan lista , og situr á hann allar þær heimasíður sem þú mátt ekki heimsækja á meðan lærdómi stendur… Facebook er t.d efst á mínu lista og þar á eftir ýmsar skemmtilegar bloggsíður o.fl … Svo ræður þú í hversu langan tíma þú kemst ekki inná síðurnar… ég stilli yfirleitt á klukkutíma og tek mér þá pásu í ca.tíu mínútur og stilli svo aftur á klukkutíma …. Þetta er að minnsta kosti voða sniðugt fyrir manneskjur sem hafa enga sjálfsstjórn J



Hægt er að ná í Appið hér fyrir Makkaeigendur… fann það því miður ekki fyrir Windows L

Kauphlaup !


Um helgina keypti ég mér flík… þó af illri nauðsyn!  Þannig er mál með vexti að ég á uppáhalds, uppáhalds buxur.  Það mætti segja að ég fari bara úr þeim til þess að þvo þær og svo ekki meir.  En allavena þá ákváðu þær (buxurnar s.s) að syngja sitt síðasta um helgina, þá myndaðist þetta líka myndarlega gat á innanvert lærið og ég fann að þær voru farnar að þynnast ískyggilega mikið á öðrum stöðum.  En nú voru góð ráð dýr, að hálftími skyldi vera eftir af opnunartíma Smáralindarinnar þennan sunnudaginn… Það var ekkert annað í stöðunni en að hendast þangað , jú inní VILA og grípa þar með naumindum síðasta parið í minni stærð ! Já ég vil meina að þetta hafi verið örlög…

En ég fékk þó nýjar buxur og er þetta í þriðja skiptið sem ég kaupi mér slíkar.  Þær fyrstu á ég enn, en rennilásin á þeim bilaði.. svo nú er ég að hugsa um að sameina þessar tvær “ónýtu” í einar .. ss. Taka rennilásin af þessum sem rifnuðu og skella á þær elstu. 

Ég verð þó að viðurkenna að það er einn galli við þessar buxur, og þá svörtu týpuna sem ég kaupi.. þær draga svo rosalega í sig .. maður er orðin kafloðin áður en maður veit af … Það lagast þó með þvottum en MÖRGUM þvottum… fyrstu dagana þarf maður að hafa Rykrúllu með sér hvert sem maður fer…. En það þarf nú meira til en þetta til þess að slíta okkur Buxum í sundur J


Hérna eru þær svo elskurnar… þær líta samt kannski ekki alveg svona vel út á mér… en eins og þið sjáið erum þær “high waisted” svo þær passa að maginn velli ekki útum allt !

 Neibb ekki minn rass ! en svona líta þær út að aftan 

Svo fínir pokarnir hjá þeim í VILA


- gréta -